17. okt 11 - Sigurður Atlason
Þakkir til Dýrfirðinga frá vestfirskri ferðaþjónustu
Kæru Dýrfirðingar
Ég vil fyrir hönd Ferðamálasamtaka Vestfjarða þakka ykkur öllum kærlega fyrir allt sem þið lögðuð á ykkur til að uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar síðasta laugardag varð jafn glæsileg og raunin varð. Þetta var vel heppnað í alla staði og einstaklega vel skipulagt. Það var vel hugsað um hópinn hvar sem hann kom og einkar ánægjulegt fyrir okkur öll að kynnast því svona rækilega hvað Dýrafjörður hefur upp á mikið að bjóða og hversu vel er vandað til verka. Það er ekki síður uppörvun og hvatning til allra þeirra sem tóku þátt í ferðinni.
-
Þóri Erni vil ég senda kveðjur fyrir sérlega áhugaverða og fróðlega leiðsögn. Það var gaman að kynnast sögu sveitarinnar, heyra af Gísla súra, heimsækja Víkingasvæðið og fá að berja víkingaskipið Véstein augum.
-
Kómedíuleikhúsið fær kveðju frá okkur og þakkir fyrir stórskemmtilega stund á Gíslastöðum. Takk kærlega fyrir okkur Elfar Logi, Ársæll og Marsibil. Kómedíuleikhúsið er eitthvað sem við getum öll verið stolt af að hafa á Vestfjörðum.
-
Eigendur og starfsfólk Við Fjörðinn fyrir veitingarnar og móttökurnar. Það var gaman að sjá alla þá natni sem er lögð þar fram, jafnt innan dyra sem utan. Þið sendið einnig kveðju frá okkur til bílstjóranna með kærri þökk.
-
Mig langar að koma kveðju til Hótel Sandafells. Heimsóknin í það mikla hús var mikil upplifun og er mikið vitni um þann mikla kraft sem finnst í vestfirskri ferðaþjónustu.
-
Eigendum og starfsfólki Veitingahornsins þakka ég fyrir hönd okkar allra góðar móttökur og sérlega góðar veitingar.
-
Góðar kveðjur til Gömlu vélsmiðjunnar á Þingeyri sem er líklega eitt af merkari fyrirbærum í landinu sem heldur um atvinnusöguna.
-
Síðast en ekki síst sendi ég kærar kveðjur til bræðranna á Hótel Núpi og starfsfólks þeirra. Þið unnuð afrek við allt skipulag.



